Viltu búa með mér?

Á Hönnunarmars 2024 bauð Híbýlaauður til skrafs og ráðagerða í kringum eldhúseyjuna, nútímaútgáfu eldstæðisins, í porti Hafnarhússins, Listasafni Reykjavíkur. Þróunarsaga fjölbýlishúsa var dregin upp með völdum dæmum  í litríkum legó-módelum.

Byggingareglugerðin er vinur þinn

Þegar íbúðir eru hannaðar þarf að sjá til þess að skapa gott umhverfi svo að íbúar fái tækifæri til að þrífast og dafna inni í íbúðinni.