Hver er pælingin?

„Bærinn er skrítinn, hann er fullur af húsum, hús meðfram öllum götum í röðum liggja, aldraðir byggja og ungir menn kaupa lóðir og ætla sér líklega að byggja“ – Svo kvað borgarskáldið Tómas Guðmundsson fyrir löngu. En hvernig býr fólk sér til híbýli? Hús þarf að byggja. Það hefur löngum þótt betra að nýta sér […]

Vinn bara heima

Heimilisbragur skrifstofuhúsnæðis nýtur vaxandi vinsælda samfara því að stöðugt fleiri heimili þjóna hlutverki sem skrifstofur fyrirtækja og fjöldi þeirra sem vinna heima fer vaxandi. Aðgreining íbúða- og skrifstofuhúsnæðis virðist vera að mást út, en það endurspeglast þó ekki í húsnæðisuppbyggingu samtímans. Hvers vegna er það? Og hvaða kostir og ókostir geta fylgt þessari þróun? Á […]

Samtal um húsnæðismál á mannamáli

Samtal um húsnæðismál á mannamáli, spunnið út frá arkitektónískum og hagrænum rannsóknum í samhengi við húsnæðisuppbyggingu á Íslandi. 

Hvað varð um samveru?

Samvera finnur sér stað þar sem byggt er undir hana. Samveran getur fundið sér stað á bekk undir beru lofti á sólríku dvalarsvæði, í göturýminu, í þvottahúsinu í sameigninni, á stigapallinum á milli 2. og 3. hæðar, í stofunni og í alrýminu svokallaða. Hægt er að njóta samveru í nýendurvakinni saunu á efstu hæð hjá […]

Birtan lyftir andanum

Í fornum fræðum er talað um að rýmið sé fíngerðasta efni náttúrunnar. Það kemur næst á eftir loftinu, sem kemur á eftir eldinum, þar á undan er vatnið og jörðin rekur lestina sem grófasta efnið. Í byggingarlistinni birtist rýmið í krafti hinna frumþáttanna fjögurra, en samspil þeirra skapar andrúmsloft sem hver og einn skynjar með […]

Hvar er Híbýlaauður?

„Nú virðist tími til þess kominn að við gætum vel að því hvert við stefnum. Með stórauknu menningarsambandi við umheiminn eigum við nú að hafa öðlast þá menntun að við getum valið og hafnað réttilega og byggt einungis á þann hátt sem er í samræmi við þarfir okkar og getu, en tekið ekki athugasemdalaust við […]